Ég fékk rosa fínan dúkkuvagn í afmælisgjöf sem ég get meira að segja setið í sjálf. Svo finnst mér laaaaang skemmtilegast að komast í pokaskúffuna og tæta uppúr henni alla pokana, hihihi...
Loksins kom mamman sér í að setja inn nýjar myndir af mér. Ég er orðin rosalega stór og er alltaf kát og brosandi. Svo er ég farin að vera dugleg að pissa í kopp - eða allavega aðeins að prófa...
Nú er maður orðinn 11 mánaða og þá er best að fara að læra að labba. Amma gaf mér voða fína skó og svo nota ég póstvagninn minn til að styðja mig við. Þetta gengur bara nokkuð vel finnst mér!
Ég á rosa sætan lítinn frænda sem við Björgvin Haukur erum mjög hrifin af. Hann kom í heimsókn til ömmu um daginn. Hann er bara tveggja vikna og rosalega lítill en mér finnst hann voðalega skemmtilegur.